Psalms 110

1Davíðssálmur. Svo segir Drottinn við herra minn: ,,Sest þú mér til hægri handar, þá mun ég leggja óvini þína sem fótskör að fótum þér.`` 2Drottinn réttir út þinn volduga sprota frá Síon, drottna þú mitt á meðal óvina þinna! 3Þjóð þín kemur sjálfboða á valdadegi þínum. Í helgu skrauti frá skauti morgunroðans kemur dögg æskuliðs þíns til þín. 4Drottinn hefir svarið, og hann iðrar þess eigi: ,,Þú ert prestur að eilífu, að hætti Melkísedeks.`` 5Drottinn er þér til hægri handar, hann knosar konunga á degi reiði sinnar. 6Hann heldur dóm meðal þjóðanna, fyllir allt líkum, hann knosar höfuð um víðan vang. 7Á leiðinni drekkur hann úr læknum, þess vegna ber hann höfuðið hátt.
Copyright information for Icelandic